flugfréttir
Ryanair stofnar leiguflugfélag í Póllandi
- Ryanair Sun mun hefja flug til sólarlanda árið 2018
Boeing 737-800 þota Ryanair á Modlin-flugvellinum í Varsjá
Írska lágfargjaldafélagið Ryanair mun á næstunni stofna nýtt leiguflugfélag í Póllandi sem mun koma til með að kallast Ryanair Sun.
Ryanair Sun mun byrja flugrekstur með fimm farþegaþotum af gerðinni Boeing 737-800 og mun félagið
sinna leiguflugi til sólarlanda til og frá Póllandi.
Forsvarsmenn Ryanair Sun segja að verið sé að ráða starfsmenn til starfa hjá félaginu en Ryanair hefur nú þegar
auglýst lausar stöður á vefsíðu sinni þar sem er leitað að fjármálastjóra, markaðsstjóra og yfirflugstjóra yfir flugrekstrardeild.
Ryanair Sun mun hefja starfsemi sína fyrir sumarið 2018 og verður félagið með höfuðstöðvar sínar á Modlin-flugvellinum
í Varsjá en Ryanair flýgur nú þegar til 37 áfangastaða frá Modlin-flugvellinum en félagið er eina félagið sem flýgur um þann flugvöll.
Þá flýgur Ryanair einnig til þriggja borga frá Chopin-flugvellinum í Varsjá sem er stærsti flugvöllur Póllands.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.