flugfréttir

Flugfreyja aðstoðaði við að lenda Boeing 737 eftir að annar flugmaðurinn veiktist

2. apríl 2017

|

Frétt skrifuð kl. 14:10

Boeing 737-800 þota frá TUIfly í aðflugi að flugvellinum í Palma

Flugfreyja aðstoðaði við að lenda farþegaþotu af gerðinni Boeing 737-800 frá þýska flugfélaginu TUIfly eftir að aðstoðarflugmaðurinn veiktist skyndilega um borð í vélinni á leið frá Hannover til Mallorca.

Atvikið átti sér stað þann 11. október í fyrra en rannsóknarnefnd flugslysa í Þýskalandi tilkynntu fyrst um atvikið sl. þriðjudag.

Vélin var í franskri lofthelgi þegar annar flugmaðurinn varð skyndilega veikur skömmu eftir að hann kom aftur inn í stjórnklefann eftir að hann hafði brugðið sér á salernið og fann hann fyrir svima og þurfti að leggjast niður.

Læknir, sem var meðal farþega um borð, var kallaður frammí og kom í ljós að flugmaðurinn hafði mjög lágan blóðþrýsting.

Í lendingu á flugvellinum í Mallorca

Flugmaðurinn var með meðvitund allan tímann en þrátt fyrir það þá ákvað flugstjórinn að kalla á flugfreyjuna til að hafa sér til halds og trausts í hægra sætinu til að aðstoða sig.

Fram kemur að flugfreyjan hafi meðal annars aðstoðað flugstjórann við ýmsar aðgerðir og einnig farið með honum yfir tékklista.

Talsmaður TUIfly segir að atvik sem þessi séu „mjög sjaldgæf“ og tók hann fram að flugfreyjan verði verðlaunuð fyrir frammistöðu sína.

Flugmaðurinn var fluttur til skoðunar á sjúkrahúsi við komuna til Mallorca en læknar náðu ekki að finna út hvað hafði valdið vanlíðan hans og var hann útskrifaður skömmu síðar.

Talsmaður TUIfly tók einnig fram að á engum tímapunkti hafi farþegar verið í hættu þar sem flugmenn eru þjálfaðir í að lenda einir ef upp koma aðstæður þar sem annar flugmaðurinn veikist.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga