flugfréttir
Antonov An-132D flýgur sitt fyrsta flug
Antonov An-132D í jómfrúarfluginu þann 31. mars
Úkraínski flugvélaframleiðaninn Antonov flaug þann 31. mars fyrstu Antonov An-132D flugvélinni sitt fyrsta flug en vélin er samvinnuverkefni Úkraínumanna og Sádí-Araba.
Antonov An-132D er endurbætt útgáfa af herflutningavélinni An-132 vélinni en vélinni var ýtt út úr samsetningarsal
þann 16. desember síðastliðinn.
Antonov An-132D getur flogið með 8 tonn af frakt eða 75 hermenn allt að 4.400 kílómetra vegalengd en vélin
kemur með tveimur PW150A skrúfumótorum frá Pratt & Whitney sem eru sömu gerðar og knýja áfram
Bombardier Q400 vélarnar.
Þróun og framleiðsla An-132D vélarinnar hefur verið fjármögnuð af tveimur fyrirtækjum og stofnunum
í Sádí-Arabíu sem er King Abdulaziz City for Science and Technology og Taqnia Aeronautics.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.