flugfréttir

Airbus íhugar stærri rafmagnsflugvél en E-Fan

- Sjá fyrir sér rafknúna farþegaflugvél árið 2030

3. apríl 2017

|

Frétt skrifuð kl. 07:15

Tölugerð mynd af rafknúinni flugvél

Airbus hefur hætt við áform sín um framleiðslu á rafknúnu rafmangsflugvélinni E-Fan og ætlar flugvélaframleiðandinn evrópski þess í stað að hefja þróun á stærri rafmagnsflugvél sem kallast E-Fan X.

Upphaflega ætlaði Airbus að framleiða E-Fan 2.0 sem átti að vera tveggja sæta rafknúin kennsluléttflugvél og fjögurra sæta flugvél sem fékk vinnsluheitið E-Fan 4.0.

Airbus tilkynnti árið 2014 að dótturfélag þess, Voltair, myndi framleiða vélina í samstarfi við franska fyrirtækið Daher-Socata og átti framleiðslan að fara fram í suðvesturhluta Frakklands og stóð til að afhenda fyrstu vélarnar árið 2018.

Hinsvegar hefur hröð þróun orðið í rafknúnnum flugvélum og er Airbus nú að íhuga að breyta til og einblína á stærri flugvél sem mun heita E-Fan X og gæti hún komið á markaðinn á næstu þremur árum.

„Fyrir þremur árum hrintum við úr vör E-Fan verkefninu en í dag erum við að skoða hvort möguleiki sé á því að fljúga E-Fan X á næstu þremur árum sem gæti komið með 2 megawatta hreyflum“, segir Stefan Schaffrath, upplýsingafulltrúi hjá farþegaþotudeild Airbus.

Rafknúna flugvélin E-Fan 1.0 flaug yfir Ermasundið í júlí árið 2015

Airbus flaug E-Fan 1.0 tilraunaflugvél sinn yfir Ermasundið í júlí árið 2015 en nú er staðan orðin sú að verið er að vega og meti kosti þess að fara í enn stærri flugvél en það veltur þó allt á þeirri þróun sem á eftir að eiga sér stað í framleiðslu á rafmagnshreyflum.

„E-Fan verkefnið snýst um að gera okkur undirbúna fyrir framtíðina og finna réttu lausnina á réttum tíma og það er alveg möguleiki á því að við munum þróa fyrstu rafknúnu farþegaflugvélina en við vitum hinsvegar ekki hvenær hún kemur á markaðinn“, segir Schaffrath.

Airbus undirritaði samning við Siemens í apríl í fyrra um þróun á tækni til að gera rafknúna farþegaflugvél að veruleika sem gæti tekið allt að 100 farþega og gæti hún komið á markaðinn árið 2030.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga