flugfréttir
Boeing hefur afhent 450 Boeing 737-800 þotur til Ryanair
Fjögurhundruð og fimmtugasta Boeing 737 þotan fyrir Ryanair við verksmiðjur Boeing í Renton í Washngton-fylki
Boeing afhenti á dögunum fjögurhundruð og fimmtugustu Boeing 737-800 þotuna sem afhent hefur verið til Ryanair frá upphafi og hefur félagið því fengið 450 þotur af þessari gerð af Next-Generation tegundinni á aðeins 18 árum.
Ryanair tekur því við að meðaltali um 25 Boeing 737-800 þotum á ári frá Boeing sem samsvarar því að lágfargjaldafélagið
írska er að fá um 2 þotur á mánuði í flotann.
Ryanair var stofnað árið 1985 og byrjaði félagið með skrúfuvélum af gerðinni Embraer EMB 110 Bandeirante og
Hawker Siddeley HS 748 og tveimur árum síðar fékk félagið fyrstu þotuna sem var af gerðinni BAC One-Eleven.
Það var ekki fyrr en árið 1994 að félagið fékk fyrstu Boeing 737 þotuna sem var af gerðinni Boeing 737-200 og árið
2003 fékk félagið fyrstu Boeing 737-300 vélina.
Flugfloti Ryanair samanstóð eingöngu af Boeing 737 þotum árið 1994 og hefur flotinn stækkað mjög ört og þá
sérstaklega á síðastliðnum árum.
Ryanair hefur í dag 380 þotur í flotanum sem eru allar af gerðinni Boeing 737-800 fyrir utan eina vél sem er af
gerðinni Boeing 737-700 en sú vél er notuð bæði í leiguflugsverkefnum, sem aukaflugvél og kennsluvél fyrir þjálfun
flugmanna.
Ryanair á von á því að fá 93 Boeing 737-800 þotur til viðbótar auk 100 flugvéla af gerðinni Boeing 737 MAX 200 sem er sérstök
lágfargjaldarútgáfa af 737 MAX.
Ryanair á von á því að vera komið með yfir 580 Boeing-þotur fyrir árið 2024.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.