flugfréttir
Branson vill leyfisgjöld af merki Virgin America til ársins 2040
- Alaska Airlines ekki á sama máli
Richard Branson segir að Alaska Airlines þurfi að greiða afnot að nafni og merki Virgin America til ársins 2040
Alaska Airlines gæti átt yfir höfði sér leiðindarmál varðandi notkun á Virgin America merkinu í kjölfar bréfs sem Richard Branson hefur sent til stjórnar félagsins.
Alska Airlines tilkynnti í seinustu viku að félagið ætli sér að leggja niður nafn og merki Virgin America á næstu tveimur
árum í kjölfar kaupa og yfirtöku á félaginu í fyrra og mun nafn Virgin America því leggjast af árið 2019.
Richard Branson, stofnandi Virgin America, segir að Alaska Airlines verði þrátt fyrir það að greiða áfram
gjöld fyrir afnot að nafninu „Virgin America“ næstu 23 árin eða til ársins 2040 þótt að félagið ætli sér ekki að nota
nafn félagsins lengur.
Alaska Airlines er ekki á sama máli en í bréfi sem stjórn Virgin Group hefur sent til Alaska Airlines segir að það standi
mjög skýrt að félaginu ber að greiða áfram gjald fyrir afnot að nafninu Virgin America og kemur fram að Alaska Airlines
hafi skrifað undir þá skilmála við kaupin í fyrra.
Virgin America greiddi 868 milljónir króna yfir leyfisgjöld á merkinu til Virgin Group áður en Alaska Airlines tók
yfir rekstrinum og var sáttmáli gerður um afnotagjöld fyrir merkið.
Lögfræðingar Alaska Airlines vilja þó meina að ekki hafi komið fram liður sem tilgreinir að gjöld skuli greidd áfram ef þeir myndu hætta við að láta félagið fljúga undir nafni Virgin America.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.