flugfréttir
Boeing hækkar verðlistann á nýjum flugvélum
Nýjar flugvélar á athafnasvæði Boeing í Everett
Boeing hefur hækkað verð á nýjum farþegaþotum og fraktflugvélum eftir eins árs hlé á breytingu á verðlistanum.
Þær þotur sem Boeing framleiðir hækka frá 2.16% upp í 2.23 prósent en hækkunin helst
í hendur við hærri laun fyrir starfsmenn og hækkun hjá birgjum og á verði á annarri þjónustu.
„Eins og alltaf þá er markmiðið að stuðla að því að Boeing veiti réttu þjónustuna á réttu verði fyrir
viðskiptavini okkar út um allan heim“, segir Randy Tinseth, markaðsstjóri Boeing.
Boeing hefur yfirleitt breytt verðskránni á hverju ári en í fyrra var það ekki gert og var listaverð á
nýjum þotum það sama og árið 2015.
Boeing 777-9 er í dag dýrasta þotan sem Boeing framleiðir en sú vél hækkaði um 2.2% í verði upp í 408.8
milljónir bandaríkjadollara sem samsvarar 46,2 milljörðum króna.
Flugfélög fá að öllu jöfnu mikinn afslátt þegar pöntun er gerð sem fer eftir stærð pöntunarinnar og
þá er meiri afsláttur þegar flugfélög taka þátt í þróun á nýrri farþegaþotutegund.
Að meðaltali fá flugfélög um 20 til 40% afslátt af listaverði þegar pantaðar eru margar þotur
á einu bretti.
Boeing hefur fengið pantanir í 110 nýjar þotur á fyrstu þremur mánuðum ársins en flugvélaframleiðandinn
hefði þurft að vera komin með pantanir í 250 vélar til að ná markmiði sínu fyrir árið 2017.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.