flugfréttir
Danish Air Transport vill endurskoða flotastefnu sína
- Vilja fleiri Airbus A320 þotur og nýrri ATR flugvélar
Airbus A320 þota Danish Air Transport
Danska flugfélagið DAT (Danish Air Transport) íhugar nú að endurskoða flugflota sinn sem samanstendur af flugvélum frá fjórum framleiðendum.
Danish Air Transport hefur fjórar Airbus A320 þotur, fimmtán ATR 42 og ATR 72 skrúfuvélar, eina
McDonnell Douglas MD-83 þotu og eina Saab 340 flugvél.
Framkvæmdarstjóri félagsins, Jesper Rungholm, vill fjölga Airbus A320 þotunum og einblína
frekar á flugvélaleigu frekar en leiguflugsstarfsemi.
„Við þurfum að yngja upp flotann. Ein Airbus A320 þotan er 14 ára og önnur er að nálgast 25 ára aldurinn
og að fjölga vélunum væri hentugast“, sagði Rungholm á flugráðstefnu European Regions Airlines
Association sem fram fór í Kaupmannahöfn í seinustu viku.
Rungholm sagði að Danish Air Transport væri ekki ýkja hrifið af seinustu ATR vélunum og væri
flugfélagið til í að skipta þeim út fyrir nýrri kynslóðir af flugvélum í þessum stærðarflokki sem eru
komnar á markaðinn.
DAT væri þá að spá í nýju -300 og -600 týpunum en þær vélar bjóða upp á þægilegra
farþegarými og betri stjórnklefa en vélarnar væru samt dýrari en þær sem félagið hefur í flotanum í dag.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.