flugfréttir
Iran Aseman Airlines pantar 30 Boeing 737 MAX þotur
Boeing 727 þota Iran Aseman Airlines
Boeing hefur undirritað samkomulag við íranska flugfélagið Iran Aseman Airlines sem hefur pantað 30 farþegaþotur af gerðinnni Boeing 737 MAX.
Samningurinn er metinn á 3 milljarða bandaríkjadali sem samsvara 341 milljarði króna en flugfélagið
íranska hefur einnig tryggt sér kauprétt á 30 vélum til viðbótar af sömu gerð.
Iran Aseman Airlines hefur 38 flugvélar í flota sínum en félagið hefur þrjár Boeing 727 þotur
sem eru komnar vel til ára sinna en þær voru smíðaðar árið 1980. Þá hefur félagið einni tvær Boeing 737-400 þotur.
Viðskiptaráðuneyti Bandaríkjanna telur að þessi samningur muni koma til með að skapa yfir 18.000
ný störf í Bandaríkjunum en Boeing fékk leyfi til þess að semja um kaupin með sérstöku leyfi frá
bandarískum stjórnvöldum.
Gert er ráð fyrir að Iran Aseman Airlines muni fá fyrstu Boeing 737 MAX þoturnar afhentar árið 2022.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.