flugfréttir
Flugvélar á flæðiskeri eftir fellibylinn Debbie
Lismore Airport eftir að fellibylurinn hafði gengið yfir bæinn
Fjölmargir bæir við norðausturströnd Ástralíu urðu fyrir barðinu á fellibylnum Debbie sem gerði mikinn usla þar í landi í seinustu viku.
Einn þeirra bæja sem fór næstum á kaf í flóðinu í kjölfar úrhellsins sem fylgdi Debbie
var Lismore en flugvöllurinn í bænum hvarf undir vatnsflauminn um helgina.
Meðfylgjandi mynd hefur farið víða um Netið sem tekin var úr loft sem sýnir upphækkað grassvæði á flugvellinum sem varð að eyju í flóðinu þar sem á annan tug flugvéla hafði verið komið fyrir.
Smellið á til að sjá stærri útgáfu af myndinni
Ekki verður hægt að nota flugbrautina þrátt fyrir að mesti vatnselgurinn er farinn þar sem brautin
þarf að gangast undir hreinsun og öryggisúttekt.
Hér að neðan má sjá nokkrar myndir sem voru teknar af Lismore-flugvellinum eftir að Debbie var gengin yfir og svo fylgir ein mynd sem sýnir flugvöllinn eins og hann lýtur út flesta daga.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.