flugfréttir

Air Canada í mál við Airbus vegna flugslyssins í Halifax

- Airbus láðist að hanna vélina til að vara flugmenn við vegna frávika í aðflugi

5. apríl 2017

|

Frétt skrifuð kl. 13:32

Airbus A320 þotan á flugbrautinni í Halifax þann 30. mars 2015, daginn eftir slysið

Air Canada hefur farið í mál við Airbus vegna flugslyss sem átti sér stað þann 29. mars árið 2015 er Airbus A320 þota félagsins brotlenti á flugvellinum í Halifax eftir að hafa lækkað flugið of fljótt á síðasta spölinum með þeim afleiðingum að vélin flaug á rafmagnslínur.

Air Canada segir að flugmennirnir sem flugu vélinni hafi gert allt rétt og sett inn réttar upplýsingar inn í flugtölvu vélarinnar fyrir aðflugið en lendingin heppnaðist ekki sem skildi þar sem lækkunarhraðinn jókst og kom vélin inn til lendingar með meiri bratta og flaug gegnum rafmagnslínur með þeim afleiðingum að annar hreyfill vélarinnar rifnaði af.

Vélin lenti um 200 metrum fyrir framan brautarendann, rann eftir brautinni og staðnæmdist 570 metrum frá enda brautarinnar en frekar hvasst var er vélin lenti og mikil snjókoma.

„Þetta óvænta aðflugshorn var tilkomið vegna trassaskaps sem skrifast á Airbus sem láðist að koma upp með aðferð eða viðvörunarkerfi til að láta flugmenn vera meðvitaða um frávik sem kann að koma upp í aðflugslínunni í aðstæðum þar sem handvirk stjórnun var þörf“, segir í yfirlýsingu frá Air Canada.

Vélin var of mikið skemmd til að hægt var að gera við hana og var hún afskrifuð

„Þar sem búið var að setja inn réttar upplýsingar í flugtölvuna fyrir lendinguna þá hefði vélin átt að koma með hjólin niður á réttum stað á brautinni“, segir í dómsmáli.

Air Canada segir að um annamarka sé að ræða sem Airbus hefði átt að vera búið að sjá fyrir svona aðstæður með viðvörunarkerfi sem gæti varað við frávikum í aðflugsstefnu.

133 farþegar voru um borð í vélinni og fimm manna áhöfn og komust allir lífs af en 23 manns slöðuðust í brotlendingunni.

Vélin var 24 ára gömul, smíðuð árið 1991, en hún gjöreyðilagðist í brotlendingunni og var afskrifuð.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga