flugfréttir
Norwegian bætir Denver og Seattle við Ameríkuflugið
Dreamliner-þota Norwegian á flugvellinum í Los Angeles
Norska lágfargjaldafélagið Norwegian hefur bætt Denver og Seattle við leiðarkerfi sitt í Bandaríkjunum en félagið ætlar að hefja flug til borganna tveggja frá London Gatwick í september í haust.
Norwegian mun nota Boeing 787-9 á þessum leiðum en flugið til Denver mun hefjast þann
16. september og verður flogið tvisvar í viku til að byrja með en frá og með 2. nóvember
verður flogið fjórum sinnum í viku.
Flugið til Seattle frá London Gatwick hefst þann 17. september og verður flogið þangað
fjórum sinnum í viku.
„Við eigum von á því að auka umsvif okkar á vesturströndinni fyrir þá sem eru að leita
eftir ódýrari flugsamgöngum til London en þaðan má halda áfram með tengiflugi
til fjölmargra áfangastaða í Evrópu“, segir Thomas Ramdahl, markaðsstjóri
Norwegian.
Norwegian flýgur nú þegar frá Evrópu til Los Angeles, San Francisco, Oakland og
til Las Vegas á vesturströninni en félagið flýgur einnig til sjö annara áfangastaða í Bandaríkjunum sem
eru Baltimore, Boston, Fort Lauderdale, Milwaukee, New York (JFK),
Orlando og Rockford í Illinois.
Þá stefnir Norwegian á að hefja flug frá Bretlandseyjum til Hartford, Newburgh Steward
og til Providence í sumar með nýju Boeing 737 MAX 8 þotunum og þá bætist
Newark-Liberty flugvöllurinn einnig inn í leiðarkerfið á þessu ári.
Flug Norwegian til Denver og Seattle verður flogið í samkeppni við British Airways
og Virgin Atlantic sem bæði fljúga til beggja borganna frá London Heathrow en félagið mun einnig fljúga það
í samkeppni við Icelandair sem einnig tengir Evrópu við Denver og Seattle.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.