flugfréttir

Pólska ríkisstjórnin pantar þrjár Boeing 737 forsetavélar

- Panta tvær Boeing 737 Business Jet og eina 737-800 VIP

6. apríl 2017

|

Frétt skrifuð kl. 12:29

Tölvugerð mynd frá Boeing af 737BBJ einkaþotu í litum pólska ríkisins

Ríkisstjórnin í Póllandi hefur pantað þrjár einkaþotuútgáfur af Boeing 737 þotunum.

Vélarnar eru pantaðar beint frá Boeing og var samningur um kaupin undirritaður við formlega athöfn í Varsjá í vikunni en um er að ræða tvær Boeing 737 BBJ (Boeing Business Jet) og eina Boeing 737-800.

Pólski flugherinn mun sjá um rekstur vélanna en þær verða einnig notaðar sem forsetaflugvélar auk þess sem embættismenn og ráðherrar í pólsku ríkisstjórninni munu fá afnot að vélunum.

Fyrstu þoturnar verða afhentar síðar á þessu ári og standa afhendingar yfir til ársins 2020.

Í kjölfar flugslyssins árið 2010 er Tupolev Tu-154M þota frá pólska flughernum fórst nálægt rússnesku borginni Smolensk var öllu forseta- og ráherraflugi hætt á vegum pólska flughersins og hafa embættismenn síðan þá flogið með Embraer-þotur frá LOT Polish Airlines.

Þá gerði pólska varnarmálaráðuneytið einnig samning í nóvember í fyrra um kaup á tveimur Gulfstream G550 einkaþotum sem verða afhentar síðar á þessu ári.

Samningurinn var undirritaður í varnarmálaráðuneytinu í Varsjá







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga