flugfréttir
251.000 farþegar með Icelandair í mars
TF-ISZ (Eiríksjökull) á flugvellinum í Brussel þann 2. apríl 2017
Alls voru 251.511 farþegar sem flugu með Icelandair í mars á þessu ári sem er 14 prósent fjölgun samanborið við mars árið 2016 þegar 220.400 farþegar flugu með félaginu.
19 prósent fleiri sæti voru í boði í mars á þessu ári miðað við mars í fyrra og sætanýting var 82,4% samanborið við 84,1% í sama mánuði í fyrra.
Á fyrst þremur mánuðum ársins hafa 657.509 farþegar flogið með Icelandair og hefur meðalsætanýting
frá áramótum verið 77.5%.
Farþegar með Flugfélagi Íslands voru 29 þúsund í mars og fjölgaði um 18% á milli ára.
Framboð félagsins var aukið um 25% samanborið við mars 2016 og sætanýtingin nam 62,8%.
Icelandair hefur í dag 30 þotur í flota sínum. 25 af þeim eru af gerðinni Boeing 757-200, ein af gerðinni
Boeing 757-300 og þá hefur félagið fjórar Boeing 767-300ER breiðþotur.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.