flugfréttir

Lenging flugbrauta á Grænlandi ógn fyrir rekstur Air Greenland

- Óttast samkeppni frá evrópskum flugfélögum með lengingu flugbrauta

7. apríl 2017

|

Frétt skrifuð kl. 14:25

Airbus A330-200 þota Air Greenland á flugvellinum í Kangerlussuaq

Air Greenland lítur á áætlanir grænlensku landstjórnarinnar um framkvæmdir við lengingu flugbrauta á tveimur flugvöllum á Grænlandi sem ógn við rekstri félagsins.

Air Greenland er eina flugfélagið sem flýgur milli Grænlands og meginlands Evrópu með Airbus A330 breiðþotu en með lengri flugbraut á fleiri flugvöllum er vonast til að hægt verði að laða að erlend flugfélög frá Evrópu sem mun þýða samkeppni fyrir Air Greenland. Fyrir lok ársins 2015 var gerður samningur um framkvmdir við lengingu flugbrauta á flugvöllunum í Nuuk og í Ilulissat.

Flugbrautin í Nuuk er 950 metrar á lengd og flugbrautin í Ilulissat á vesturstönd Grænlands er aðeins 845 metrar á lengd.

Til stendur að lengja brautirnar á báðum flugvöllunum og gera þær allt að 2.200 metra langar en þess má geta að flugbrautin í Kangerlussuaq er 2.700 metrar á lengd.

Í dag flýgur Air Greenland frá Kangerlussuaq (Syðri-Straumsfirði) til Kaupmannahafnar en félagið flytur farþegar frá öðrum bæjum á Grænlandi með litlum flugvélum til Kangerlussuaq og fljúga þeir svo þaðan til Danmerkur með einu breiðþotunni sem félagið hefur í flota sínum.

Til stendur að tvöfalda lengd flugbrautanna í Nuuk og í Ilulissat

Air Greenland segir að ef aðrir flugvellir á Grænlandi fá lengri flugbrautir mun það opna tækifæri fyrir erlend flugfélög til að fljúga beint til þeirra með smærri þotum og breiðþotum og óttast flugfélagið grænlenska að farþegum með Air Greenland eigi eftir að fækka við það.

Í framhaldi af þessu hefur Air Greenland lækkað verðmæti þeirrar einu Airbus A330-200 þotu sem félagið hefur þar sem félagið sér fram á að minni þörf verður vélina ef evrópsk flugfélög fara að boða komu sína til Grænlands með Airbus A320 og Boeing 737 þotum.

Tekjur Air Greenland árið 2016 námu 20.6 milljörðum króna og var hagnaður félagsins 649 milljónir króna.

Þá fjölgaði farþegum með Air Greenland í fyrra um 9% samanborið við árið 2015 sem er tilkomin vegna fjölgun ferðamanna til Grænlands.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga