flugfréttir

Fyrsti Boeing 737 MAX flughermirinn fær vottun

9. apríl 2017

|

Frétt skrifuð kl. 13:47

Stjórnklefinn á Boeing 737 MAX

Fyrsti Boeing 737 MAX flughermirinn hefur fengið vottun frá bandarískum flugmálayfirvöldum (FAA) en hermirinn er staðsettur í þjálfunarbúðum Boeing í Miami í Flórída.

Boeing 737 MAX flughermirinn er framleiddur af TRU Simulation + Training en hermirinn hefur hlotið vottun sem Level C en staðallinn verður síðar uppfærður upp í Level D þegar búið er að uppfæra allar flugupplýsingar inn í stjórnbúnað hermisins.

Level C flughermir er skilgreindur sem hermir sem getur hreyfst og snúist í allar sex áttir; fram og aftur, upp og niður og frá hægri til vinstri. Þá er Level C flughermir einnig flokkaður sem hermir sem hefur viðbragðsflýti upp að 150 millisekúndum og þurfa þeir að gefa báðum flugmönnum a.m.k. 75 gráðu lárétt útsýni út um stjórnklefann.

Strangari kröfur eru gerðar til flughermis sem er skilgreindur sem Level D en hann hefur sömu eiginleika og Level C en þó með þeim fleiri atriðum á borð við 150 gráðu útsýnis fyrir báða flugmenn út um stjórnklefann og þá koma Level D flughermar með breytilegan skerpupunkt (distant focus) í ásýnd í umhverfi.

Einnig er gerð krafa um að Level D flughermar séu búnir yfir raunverulegri hljóðum í stjórnklefa ásamt fleiri viðbótarhreyfimöguleikum og raunverulegri grafík samanborið við A, B og C flugherma.

Boeing 737 MAX flughermum verður einnig komið fyrir í þjálfunarbúðum í Shanghai, Singapore og á London Gatwick flugvelli.

Þjálfunarbúðir Boeing í Miami







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga