flugfréttir

Iran Air mun fá nýja Boeing 777 sem átti að fara til Turkish

- Verður afhent til Írans um miðjan maí

10. apríl 2017

|

Frétt skrifuð kl. 07:14

TC-LJK átti að afhendast til Turkish Airlines í þessum mánuði en vegna fjárhagserfiðleika hjá félaginu mun hún verða seld til Iran Air

Iran Air á von á sinni fyrstu Boeing 777 þotu á næstunni en sú vél er af gerðinni Boeing 777-300ER.

Iran Air mun alls fá fimmtán Boeing 777-300ER þotur sem er hluti af risapöntun sem gerð var í desember 2016 þegar írönsk stjórnvöld gerðu samning við Boeing um pöntun á 80 farþegaþotum.

Í nýlegu viðtali við samgönguráðherra Írans, Asghar Fakhrieh Kashan, kemur fram að Iran Air muni fá fyrstu Boeing 777-300ER þotuna um miðjan maí.

Vélin sem Iran Air fær átti upphaflega að afhendast til Turkish Airlines en vegna samdráttar í rekstri flugfélagsins tyrkneska var ákveðið að fresta áætlunum um aukin umsvif félagsins á næstunni.

Vélin átti að afhendast til Turkish Airlines í þessum mánuði en þess í stað hefur verið ákveðið að afhenda hana til Iran Air.

Búið var að mála vélina í litum Turkish Airlines en vélin verður næstkomandi fimmtudag (13. apríl) endurmáluð í litum Iran Air og skráð á íranska skráningu.

Aðilar úr stjórn Iran Air eru nú að skoða fyrstu Boeing 777-300ER vélina og ganga úr skugga um að hún uppfylli kröfur félagsins en ef það verða gerðar einhverjar aðfinnslur við vélina þá mun afhendingu seinka um einn mánuð.

Þetta er ekki í fyrsta sinn sem Iran Air tekur við farþegaþotum sem áttu upphaflega að afhendast til annars flugfélags en félagið hefur nú þegar fengið Airbus A330 þotu og eina Airbus A321 vél sem áttu að fara til kólumbíska flugfélagsins Avianca.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga