flugfréttir
Wizz Air mun hefja flug í fyrsta sinn til Mið-Asíu
- Munu hefja flug til Astana í Kazakhstan í júní
Airbus A320 þota Wizz Air í flugtaki á flugvellinum í Oporto í Portúgal
Ungverska flugfélagið Wizz Air hefur tilkynnt að félagið mun hefja flug í fyrsta sinn til Mið-Asíu en félagið ætlar sér að byrja að fljúga til Astana í Kazakhstan snemma í sumar.
Wizz Air mun fljúga tvisvar í viku frá Búdapest til Astana frá og með 8. júní en Astana er 11. áfangastaðurinn
sem bætist við leiðarkerfi Wizz Air á þessu ári.
Fá evrópsk flugfélög fljúga til Astana en þau eru Finnair, KLM Royal Dutch Airlines, LOT Polish Airlines og Turkish Airlines.
Wizz Air er stærsta flugfélagið í Ungverjalandi en félagið hefur 77 Airbus-þotur í flota sínum sem fljúga
til 140 áfangastaða í fjörutíu löndum.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.