flugfréttir
Silk Way Airlines fær fimmtu Boeing 747-8F fraktþotuna
Fimmta Boeing 747-8F þotan fyrir Silk Way Airlines lendir á flugvellinum í Bakú
Fraktflugfélagið Silk Way Airlines tók á dögunum við sinni tíundu júmbó-þotu sem er af gerðinni Boeing 747-8F en vélin er einnig fimmta Boeing 747-8F þota félagsins.
Silk Way Airlines fékk vélina afhenta við hátíðlega athöfn á Heydar Aliyev flugvellinum í Bakú þann 7. apríl sl. sem er heimavöllur félagsins.
Silk Way Airlines hefur að undanförnu myndað góð tengsl við Boeing og flugmálayfirvöld í Bandaríkjunum
en flugrekstur félagsins er viðurkenndur af samgönguráðuneyti Bandaríkjanna sem það vinnur í samstarfi með
er kemur að rekstri og öryggi.
Með fimmtu Boeing 747-8F fraktþotunni mun Silk Way Airlines ná að auka umsvif sín og flutningsgetu sína og fjölga áfangastöðum.
Stjórnendur Silk Way Airlines taka við vélinni við komuna til Bakú
Félagið flýgur nú þegar með frakt frá Baku til borga á borð við New York, Chicago, Mílanó, Lúxemborg, Frankfurt, Istanbul, Dubai, Seoul, Hong Kong og Shanghai.
Silk Way Airlines hefur samt áform um að hefja fraktflug til Tókýó, Djibouti, Nairobi og til Dhaka á næstunni.
Á undanförnum 10 árum hefur Heydar Aliyev flugvöllurinn í Bakú stækkað þónokkuð sem fraktflugsmiðstöð sem tengir
saman Austurlönd og Vesturlönd í vöruflutningaflugi en Cargolux flýgur einnig frá Baku til sjö áfangastaða.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.