flugfréttir

Finnair flýgur sitt fyrsta flug til Íslands í dag

11. apríl 2017

|

Frétt skrifuð kl. 12:23

Airbus A320 þota Finnair

Finnair mun í dag fljúga sitt fyrsta flug til Íslands en flugfélagið finnska tilkynnti í ágúst árið 2016 um að félagið ætlaði sér að hefja flug til Keflavíkur.

Upphaflega stóð til að Finnair myndi fljúga einungis yfir sumartímann fram til 28. október en síðar ákvað félagið að fljúga til Íslands allan ársins hring vegna vinsælda landsins.

Þá ætlaði Finnair sér einnig að fljúga til Íslands fjórum sinnum í viku en síðar var ákveðið að fjölga ferðunum upp í fimm flug í viku en yfir vetrartímann verður flogið þrisvar í viku.

„Ísland er frábært áfangastaður og það er okkur sönn ánægja að geta boðið viðskiptavinum okkar upp á að ferðast til Íslands. Þá er það mikil ánægja að tengja Ísland við leiðarkerfi okkar sem tengir landið við 18 áfangastaði í Asíu“, segir Robert Lönnblad hjá Finnair.

Fyrsta flug Finnair til Íslands mun fara í loftið frá Vantaa-flugvellinum í Helsingi klukkan 14:30 að íslenskum tíma sem flug AY603 og lendir vélin í Keflavík klukkan 17:00.

Vélin hefur klukkutíma viðdvöl og fer aftur til baka í loftið klukkan 18:00 og er lent í Helsinki klukkan 00:30 að finnskum tíma.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga