flugfréttir

Norwegian stefnir á 70 þotur í Argentínu eftir átta ár

- Ætla fljúga milli 90 áfangastaða í 25 löndum í S-Ameríku og Evrópu

12. apríl 2017

|

Frétt skrifuð kl. 06:56

Norwegian ætlar að hefja flug milli London Gatwick og Buenos Aires í nóvember á þessu ári

Norwegian hefur gert argentískum flugmálayfirvöldum fyrir fyrirhuguðum áætlunum sínum varðandi hið nýstofnaða dóttur félag í Argentínu sem mun koma til með að kallast Norwegian Air Argentina.

Norwegian hefur skilað inn 680 blaðsíðna greinargerð sem argentínska dagblaðið La Nacion birti en þar kemur meðal annars fram að félagið ætli að stefna á að vera með allt að 70 Boeing 737 þotur í landinu

Norwegian ætlar sér miklu meiri hluti en að tengja Buenos Aires við Evrópu og hefja innanlandflug í Argentínu þar sem félagið ætlar að dempa sér inn í flug milli fjölda borga í Suður-Ameríku og tengja þær stærstu við Evrópu líkt og félagið gerir í dag með flugi milli Evrópu og Bandaríkjanna auk þess sem félagið flýgur milli áfangastaða innan Evrópu.

Tölvugerð mynd af Boeing 737 MAX vél í litum Norwegian Air

Í greinargerðinni kemur fram að Norwegian ætlar sér að verja allt að 500 milljörðum króna í rekstur Norwegian Air Argentina á næstu 5 til 8 árum sem fer í að byggja upp öflugt leiðarkerfi í Suður-Ameríku auk þess sem félagið ætlar sér að fljúga frá suður-amerískum borgum til Norður-Ameríku og til Evrópu.

Hefja flug milli Buenos Aires og London Gatwick í haust

Á þessum 8 árum ætlar Norwegian sér að fljúga allt að 146 flugleiðir í Suður-Ameríku sem mun koma til með að stofna allt að 3.500 ný störf.

Norwegian ætlar sér að byrja að fljúga á milli Buenos Aires og London Gatwick strax í nóvember í haust og hefja innanlandsflug í Argentínu á sama tíma með sex Boeing 737 þotum en eftir fyrsta rekstarárið ætlar Norwegian sér að vera komið með 11 Boeing 737 þotur í innanlandsfluginu og fjórar Boeing 787 þotur í flug milli Suður-Ameríku og Evrópu.

Eftir tvö og hálft ár ætlar Norwegian að vera komið með 25 meðalstórar þotur í Argentínu á borð við Boeing 737 og 10 breiðþotur. Þegar reksturinn er komin á fullt árið 2025 stefnir félagið á að hafa 70 þotur í Argentínu; fimmtíu af gerðinni Boeing 737 og 20 Dreamliner-þotur.

„Með þessu munum við geta flogið allt að 146 flugleiðir í leiðarkerfinu með allt að 18 milljónir farþega á ári milli 90 áfanganstaða í 25 löndum“, segir Alfons Claver, spænskur talsmaður Norwegian.

Norwegian ætlar sér að setja upp bækistöðvar í Argentínu í borgum á borð við Ezeiza, Cardona og Mendoza þar sem áhafnir og flugflotinn verður staðsettur.

Umsvif Norwegian í Argentínu gæti skapað óbeint allt að 60.000 ný störf og munu umsvifin auka landsframleiðslu landsins frá 1.5 til 2 prósent.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga