flugfréttir

SAS íhugar flug til Ameríku, Írans og Indlands með minni þotum

- Airbus A321LR eða Boeing 737 MAX koma til greina

12. apríl 2017

|

Frétt skrifuð kl. 11:15

Airbus A320neo þota SAS í flugtaki

SAS (Scandinavian Airlines) er að íhuga að hefja flug til nýrra áfangastaða í Bandaríkjunum auk þess sem verið er að skoða möguleikann á að hefja flug til Indlands og Írans.

Meðal þess sem er í bígerð hjá SAS er að gera sambærilega hluti og Norwegian sem er að fljúga til austurstrandar Bandaríkjanna með Boeing 737 MAX eða Airbus A321 þotum sem gætu einnig nýst í flugið til Írans og Indlands.

Á seinasta eina og hálfu ári hefur SAS aukið umsvif sín töluvert í langflugi þar sem félagið hefur hafið flug til Hong Kong, Los Angeles, Boston og Miami en Eivind Roald, framkvæmdarstjóri félagsins, segir að SAS sé tilbúið í að færa út kvíarnar enn frekar.

Til að láta þetta verða að veruleika þarf SAS réttu flugvélarnar en félagið pantaði á sínum tíma þrjátíu Airbus A320neo þotur og er nú þegar búið að afhenda sex vélar af þeirri gerð en SAS hefur verið að skoða möguleika á því að breyta pöntuninni yfir í langdræga Airbus A321LR þotur sem geta flogið allt að 7.400 kílómetra vegalengd.

Eivind Roald hefur nú greint frá því að Boeing 737 MAX kemur einnig til greina en framkvæmdarstjórinn sagði í nýlegu viðtali við USA Today að valið standi á milli þess að breyta hluta pöntunar í Airbus A320neo yfir í Airbus A321LR eða leggja inn pöntun til Boeing í 737 MAX vélarnar.

Með þessu væri SAS að feta í fótspor Norwegian sem ætlar sér að hefja flug yfir Atlantshafið til Bandaríkjanna með Boeing 737 MAX en Eivind tekur fram að ekki standi til að koma upp bækistöð utan Skandinavíu og fljúga þaðan til Ameríku eins og Norwegian ætlar sér að gera með flugi frá Írlandi til Bandaríkjanna.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga