flugfréttir
Jómfrúarflug Boeing 737 MAX 9 á morgun
N7379E er fyrsta Boeing 737 MAX 9 þotan sem framleidd hefur verið
Jómfrúarflug fyrstu Boeing 737 MAX 9 þotunnar mun fara fram á morgun, 13. apríl, en þetta er stærsta útgáfan af Boeing 737 MAX þotunni.
Boeing frumsýndi fyrstu tilraunaþotuna af gerðinni Boeing 737 MAX 9 þann 7. mars sl. en framleiðsla á Boeing 737 MAX 8 er þegar
komin á fullt skrið þótt sú vél hafi ekki enn verið afhent.
Áætlað er að vélin muni hefja sig á loft frá Renton-flugvelli klukkan 10:00 í fyrramálið að vesturstrandartíma
sem er klukkan 17:00 að íslenskum tíma og er gert ráð fyrir að vélin muni fljúga í um 3 klukkustundir.
Boeing 737 MAX 9 er arftaki Boeing 737-900 og 737-900ER vélanna sem komu á markaðinn árið 1997. Sú vél var pöntuð í 547 eintökum en í dag hafa 11 flugfélög pantað 418 eintök af Boeing 737 MAX 9.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.