flugfréttir
Kínverskt flugfélag á von á næstum 100 nýjum þotum í ár
Airbus A330 þota í litum Hainan Airlines við verksmiðjur Airbus í Toulouse
Kínverska flugfélagið Hainan Airlines mun taka við hvorki meira né minna en 96 nýjum farþegaþotum á þessu ári.
Félagið á von á 51 þotu frá Boeing; 41 af gerðinni Boeing 737-800, níu Boeing 787-9 og ein Boeing 737-700 vél.
Þá á félagið von á 24 farþegaþotum
frá Airbus sem samastanda af sextán Airbus A320, fjórum Airbus A330-200, þremur A330-300 og einni Airbus A350 þotu.
Þar að auki mun Hainan Airlines fá 21 þotu frá brasilíska flugvélaframleiðandanum Embraer sem verða af gerðinni
Embraer E190.
Hainan Airlines á von á því að farþegum með félaginu eigi eftir að fjölga upp í 78.2 milljónir
á þessu ári sem er fjölgun um 66.3% frá því í fyrra.
Hainan Airlines er fjórða stærsta flugfélagið í Kína er kemur að stærð flugflota en það stærsta er China Southern Airlines,
í 2. sæti er China Eastern og þá kemur Air China í þriðja sæti.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.