flugfréttir
Delta leggur inn þriðju pöntunina í Boeing 737-900ER
- Panta 10 vélar til viðbótar
Boeing 737-900ER þota Delta Air Lines
Delta Air Lines hefur frá byrjun ársins bætt við tíu þotum í pöntun sína af vélum af gerðinni Boeing 737-900ER en með því á félagið von á 54 þotum af þessari gerð á næstu árum.
Delta Air Lines hefur í dag 76 Boeing 737-900ER þotur og mun félagið því koma til með að hafa 130
þotur af þessari gerð þegar þær hafa allar verið afhentar.
Boeing 737-900ER er þriðja algengasta vélin í flota Delta en flestar vélarnar eru af gerðinni
McDonnell Douglas MD-88 sem telja 116 þotur en næstflestar eru af gerðinni Boeing 757-200
sem telja hundrað vélar og þá hefur félagið 91 þotu af gerðinni Boeing 717.
Delta Air Lines hefur tvisvar sinnum áður lagt inn pöntun í Boeing 737-900ER sem var fyrst gert í
ágúst árið 2011 þegar félagið pantaði 100 þotur og í desember árið 2015 þegar pantaðar voru tuttugu vélar.
Boeing 737 þoturnar hafa verið að leysa af hólmi eldri Boeing 757-200 vélar félagsins en þá hefur
Delta einnig sextán Boeing 757-300 vélar.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.