flugfréttir

Silk Way Airlines pantar tíu Boeing 737 MAX 8 þotur

15. apríl 2017

|

Frétt skrifuð kl. 16:12

Boeing 747-8F fraktþota Silk Way Airlines

Boeing tilkynnti í gær að Silk Way Airlines hafi lagt inn pöntun í tíu Boeing 737 MAX 8 þotur sem eru fyrstu farþegaþoturnar sem pantaðar hafa verið af Silk Way Group.

Pöntunin er metin á 1.1 milljarða bandaríkjadali sem samsvarar 122 milljörðum króna en pöntunin var áður skráð á lista yfir pantanir í nýjar þotur hjá Boeing undir nafnleynd.

Í tilkynningu frá ríkisstjórn Azerbaijan kemur fram að samningur um kaup á tíu Boeing 737 MAX 8 þotum hafi verið undirritaður á flugsýningunni í Farnborough á Engalandi sl. sumar.

Fyrstu tvær þoturnar verða afhentar fyrir lok ársins 2018 en hinar átta vélarnar verða afhentar í framhaldi af því til ársins 2020.

Silk Way Group á og rekur 23 dótturfélög sem öll starfa í flugiðnaðinum og rekstri tengdum fluginu en Silk Way Airlines sérhæfir sig í fraktflugi og hefur í dag tvær Boeing 747-400F fraktþotur og fimm nýjar júmbó-fraktvélar af gerðinni Boeing 747-8F.

Með pöntuninni í Boeing 737 MAX 8 þoturnar er áætlað að Silk Way Group ætli að ryðja sér leið inn á farþegaflugsmarkaðinn.

Boeing 737 MAX 8 þotan í fyrsta tilraunafluginu







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga