flugfréttir

Móðurfélag British Airways segir bótagreiðslur til íbúa nálægt Heathrow of háar

- Yfir 780 heimili þurfa að víkja vegna þriðju flugbrautarinnar á Heathrow

16. apríl 2017

|

Frétt skrifuð kl. 14:45

Boeing 777-300ER þota British Airways í aðflugi að London Heathrow yfir Myrtle Avenue götunni

Deilur hafa sprottið upp á milli stjórnar Heathrow-flugvallarins og International Airlines Group (IAG), móðurfélags British Airways, vegna bótagreiðslna til þeirra íbúa sem eiga fasteignir á því svæði sem til stendur að leggja þriðju flugbrautina á Heathrow-flugvelli.

Þriðja flugbrautin verður staðsett skammt norður af 27R/09L brautinni og mun hún liggja samsíða henni en til að rýma fyrir brautinni þarf að fjarlægja yfir 700 hús í hverfinu norður af flugvellinum sem verður jafnað við jörðu.

Staðið hefur til að íbúum verði greidd fjárhæð að andvirði fasteignanna sem þeir fá greidd í skiptum fyrir lóðirnar en nú hefur John Holland-Kaye greint frá því að til standi að greiða íbúunum þá upphæð sem fasteignirnar eru metnar á ásamt 25% að andvirði húsanna í bónusgreiðslu auk þess sem greiða eigi flutningskostnað og önnur tilfallandi gjöld.

IAG hafði fallist á bótagreiðslur til íbúa en fyrirtækið segir að Heathrow-flugvöllur sé að bjóða íbúum mun hærri greiðslur en rætt var um í fyrstu og sé upphæðin „of rausnarleg“.

IAG segir að kostnaðurinn muni alltaf lenda á flugfélögunum þar sem ríkisstjórn Bretland hafði rætt um að breskir skattgreiðendur myndi ekki borga króna í framkvæmdunum við þriðju flugbrautina þar sem Heathrow-flugvöllur mun borga brúsann sem lendir svo á flugfélögunum.

Ummæli IAG hafa valdið reiði meðal bæjarstjórna í nærrliggjandi hverfum sem hafa þegar hótað því að höfða dómsmál um leið og búið verður að samþykkja framkvæmdirnar á þriðju flugbrautinni formlega.

Þau hverfi sem hafa staðið saman í baráttunni gegn þriðju flugbrautinni á Heathrow-flugvelli eru Richmond, Wandsworth, Hillingdon, Windsor og Maidenhead.

IAG segir að stjórn Heathrow-flugvallarins hafi samt aldrei borið undir fyrirtækið þær greiðslur sem til standi að borga íbúunum sem eru mun hærri en talað var um í fyrstu.

IAG segir að mjög ólíklegt sé að sum flugfélög væru til í að fljúga um Heathrow miðað við þann kostnað sem þau munu þurfa að standa undir vegna framkvæmdanna sem þýðir að flugfélög verði tilneydd til þess að hækka fargjöld.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga