flugfréttir
Piper Cheyenne brotlenti við matvöruverslun skömmu eftir flugtak í Portúgal
- Fimm látnir og þar á meðal vörubílstjóri
Mikinn reyk lagði frá slysstað við Lidl-verslunina í bænum Tires
Að minnsta kosti fimm eru látnir eftir að lítil flugvél af gerðinni Piper PA-31T Cheyenne II brotlenti á bílastæði við matvöruverslunina Lidl í bænum Tires í Portúgal, skammt vestur af höfuðborginni Lissabon.
Samkvæmt fjölmiðlum í Portúgal þá voru fjórir í flugvélinni, einn flugmaður og þrír farþegar og komst
enginn lífs af en sá fimmti sem lét lífið var vörubílstjóri en flugvélin féll til jarðar ofan á vörubíl þar sem bílstjórinn var að afferma vörur inn í verslunina.
Flugvélin var skráð í Sviss en hún fórst skömmu eftir flugtak frá Cascais-flugvellinum eftir hádegi í dag en förinni
var heitið til Marseille í Frakklandi.
Orsök slyssins eru ekki kunn en sjónarvottar segja að sprenging hafi komið upp í vélinni áður en hún féll
til jarðar.
Reykurinn séður frá Cascais-flugvellinum þaðan sem vélin hóf sig á loft:
Flugvélin sem fórst var með skráninguna HB-LTI
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.