flugfréttir
Ráðstefna alþjóðasamtaka flugleiðsöguveitenda fer fram í Köben í sumar
- Árleg ráðstefna CANSO (Civil Air Navigation Services Organization)
Árleg ráðstefna CANSO (Civil Air Navigation Services Organization) fer fram í sumar í Kaupmannahöfn
Fyrirtæki og flugleiðsöguveitendur hvaðan af úr heiminum munu hittast á ráðstefnu CANSO (Civil Air Navigation Services Organization) sem að þessu sinni fer fram í Kaupmannahöfn í sumar.
Ársráðstefna CANSO fer fram á hverju ári í mismunandi löndum ár hvert en það er danska flugleiðsöguþjónustuveitandinn
Naviair sem verður gestgjafinn í ár en ráðstefnan fer fram frá 12 til 15. júní.
Gert er ráð fyrir að yfir 200 yfirmenn frá flugleiðsögufyrirtækjum í 90 löndum muni mæta á ráðstefnuna auk
fjölda annarra aðila frá ýmsum alþjóðastofnunum í flugheiminum á borð við Alþjóðaflugmálastofnunina ICAO.
Ráðstefna fer fram á hótelinu Scandic Copenhagen nálægt Vesterport í miðbæ Kaupmannahafnar en margir
aðilar frá flugleiðsöguaðilum munu einnig nýta tækifærið til að halda óformlega fundi til að ná samningum um
samstarf af ýmsu tagi.
Frá ráðstefnu CANSO
Meðal annars mun Alexandre de Juniac, formaður ICAO, halda ræðu auk Rickard Gustafson, framkvæmdarstjóra
SAS og þá munu aðilar frá SpaceX, Blue Origin og Virgin Galactic halda ræðu um áform sín um flug með
farþega út í geiminn.
Í fyrra fór CANSO ráðstefnan fram í Vancouver í Kanada og árið 2015 í Suður-Afríku en við lok ráðstefnunnar
í sumar verður ákveðið hvaða land mun halda næstu ráðstefnu árið 2018.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.