flugfréttir
Fyrstu Beluga XL einingarnar komnar landleiðina til Toulouse
- Tók bílalestina fimm nætur að aka 475 kílómetra leið
Bílalestin með einingarnar í fyrstu Beluga XL flugvélina kemur til Toulouse eftir 5 daga akstur frá norðausturhluta Spánar
Fyrstu stóru einingarnar fyrir nýju Beluga XL flutningavél Airbus voru á dögunum ferjaðar með nokkrum flutningabílum til samsetningarstöðvar Airbus í Toulouse sem nefnist Final Assembly (L34).
Það tók fimm nætur fyrir bílalestina að aka með einingarnar frá verksmiðjum Aernnova í Berantevilla
í norðurhluta Spánar til Toulouse en fyrir hefðbundinn fólksbíl myndi ferðalagið taka um 5 klukkustundir á hraðbrautinni.
Fyrsta Beluga XL vélin hefur nú þegar tekið á sig mynd í verksmiðjum Airbus í Toulouse sem hefur smíðað þann grunn sem byggir á Airbus A330-200 þotunni en einingarnar sem komu á dögunum er sérsmíðaðar.
Til samans munu einingarnar mynda fyrstu Beluga XL vélina sem mun svipa að mestu leiti til þeirra
Beluga-véla sem Airbus notar í dag til að fljúga flugvélaeiningum á milli verksmiðja.
Framleiðsla á fyrstu einingunni hófst í Aernnova í desember árið 2015 en fyrirtækið hefur framleitt 2.000 einingar
sem skrokkur á einni flugvél samanstendur af.
Airbus ætlar að taka þessa nýju kynslóð af Beluga-vélunum í notkun árið 2019 en sú fyrsta mun fljúga sitt
fyrsta tilraunaflug á næsta ári.
Airbus kynnti Beluga XL vélina í nóvember árið 2014 en vélin mun koma með Trent 700 hreyflum frá Rolls-Royce en fimm eintök af vélinni verða smíðuð.
Fleiri myndir:
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.