flugfréttir

Singapore fyrsti áfangastaður Norwegian í Asíu

- Munu fljúga á Changi-flugvöllinn frá Gatwick í september

21. apríl 2017

|

Frétt skrifuð kl. 06:44

Boeing 787-9 þota Norwegian á flugvellinum í Los Angeles

Norska lágfargjaldafélagið Norwegian mun hefja flug til Singapore sem verður fyrsti áfangastaður félagsins í Asíu en félagið mun fljúga þangað frá Gatwick-flugvellinum í London.

Flugið til Singapore mun hefjast þann 28. september og verður flogið fjórum sinnum í viku á Changi-flugvöllinn í Singapore sem er 7. stærsti flugvöllurinn í Asíu en völlurinn hefur í fimm ár í röð verið útnefndur sem besti flugvöllur í heimi af SkyTrax fyrirtækinu.

„Flugáætlun okkar yfir Atlantshafið hefur sýnt að það er gríðarleg eftirspurn eftir lágfargjaldaflugi til Norður-Ameríku og þar af leiðandi er það mikil ánægja að geta aukið umsvifin inn á nýjan markað með fyrsta fluginu til Asíu“, sagði Björn Kjos, framkvæmdarstjóri Norwegian.

Norwegian mun hefja flug til Singapore frá London Gatwick í septemberi

Það er dótturfélagið Norwegian UK sem mun annast flugið til Singapore en félagið hefur fengið leyfi fyrir farþegaflugi til Asíu, Afríku og Suður-Ameríku.

Flugið til Singapore verður flogið með Dreamliner-þotum en félagið hefur fengið 14 slíkar þotur afhentar frá Boeing, átta af gerðinni Boeing 787-8 og sex af gerðinni Boeing 787-9.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga