flugfréttir

Þrjár Boeing 777 þotur Biman úr umferð í margar vikur

- Ríkisstjórn landsins rannsakar hvað veldur örðuleikunum með vélarnar

21. apríl 2017

|

Frétt skrifuð kl. 07:13

Boeing 777-300ER þota Biman Bangladesh

Ríkisstjórn Bangladesh rannsakar nú hvers vegna tvær Boeing 777-200ER þotur í flota ríkisflugfélagsins Biman Bangladesh hafa eytt seinustu fjórum mánuðum að mestu leyti á jörðu niðri en vélarnar hafa lítið sem ekkert flogið frá því um áramót.

Vélarnar báðar voru teknar á leigu til fimm ára frá EgytptAir árið 2014 í formi þurrleigusamnings en leigusamningurinn hljómaði upp á 3,8 milljarða króna.

Staða vélanna beggja gefur til kynna að þær séu í virkri umferð en samkvæmt upplýsingum frá Flightradar24.com þá hafa þær ekki flogið frá því í desember 2016 vegna viðhalds.

Aðili, sem kunnugur er málinu, segir að vélarnar voru teknar úr umferð þar sem að minnsta kosti 20 sinnum hafi komið upp vandamál árið 2016 vegna síendurtekinna bilana í hreyflum vélanna.

Samkvæmt leigusamningnum þá er það EgyptAir sem á að annast viðgerðir og viðhald á hreyflunum en samkvæmt heimildum þá er um stærra vandamál að ræða og á meðan þarf Biman Bangladesh að greiða leigugjöld fyrir vélarnar.

Þá hafa tvær aðrar þotur félagsins verið kyrrsettar í heilan mánuð. Önnur af gerðinni Boeing 777-300ER eftir að vélin varð fyrir fuglum í flugtaki í Dammam í Sádí-Arabíu og þá hefur ein Boeing 737-800 þota verið óvenju lengi í C-skoðun í Bangkok.

Þar sem fjórar vélar hafa verið að undanförnu úr umferð hefur leiðarkerfi félagsins orðið fyrir töluverðum röskunum þar sem þurft hefur að aflýsa flugi.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga