flugfréttir
Kostnaður við aukið öryggi á flugvöllum á ekki að bitna á flugfélögum
Vopnaður hermenn á Charles de Gaulle flugvellinum í París
Yfirmaður samtaka flugfélaga í Evrópu, A4E, segir að flugfélög og flugvellir eigi ekki að standa að kostnaðinum sem fylgir því aukna öryggi sem hefur verið innleitt á flugvöllum í kjölfar aukinnar hættu á hryðjuverkum að undanförnu.
Thomas Reyneart, yfirmaður Airlines for Europe (A4E) segir að ríkisstjórnir landa Evrópu eigi að koma
með tillögur að því hverjir það eru sem borga brúsann af öryggisaðgerðum og viðbúnaði sem hefur
verið settur á viðsvegar á flugvöllum og segir hann að sá kostnaður eigi ekki að bitna á flugfélögum.
Reyneart segir að margsvísleg tækni hafi verið bætt við til að auka öruggi á flugvöllum að undanförnu
sem hefur aukin kostnað í för með sér og segir hann um „pólitískan forgang“ sé að ræða og bendir á að rót
vandans liggur langt út fyrir flugvellina sjálfa sem ætti að einblína betur á.
Reyneart talaði um öryggismál á flugvöllum á Routes Europe ráðstefnunni í Belfast í gær en einnig kom
hann inn á hagræðingu í flugumferðarstjórnun í Evrópu, lækkun á flugvallargjöldum og afnám
flugvallaskatta.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.