flugfréttir
Eftirlíking af tvíþekju frá fyrra stríði brotlenti í Kaliforníu
- Flugmaður vélarinnar lést í slysinu
Flak vélarinnar á vettvangi við bæinn Paso Rebles fyrr í dag
Flugmaður lést er eftirlíking af gamalli tvíþekju frá fyrri heimstyrjöldinni fórst skömmu eftir flugtak frá litlum flugvelli í Kaliforníu í gær.
Flugmaðurinn var sá eini sem var um borð í vélinni en skömmu eftir flugtak fórst vélin og brotlenti á akri nálægt
hraðbraut við bæinn Paso Robles sem er staðsettur í um 260 kílómetra fjarlægð norðvestur af Los Angeles.
Lögreglan í San Luis Obispo var send á staðinn og þá hafa sérfræðingar frá samgönguöryggisnefnd
Bandaríkjanna (NTSB) og FAA einnig haldið af stað á slysstað.
Ekki kemur fram hvaða tegund flugvélin var og þá er ekki vitað um orsök slyssins.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.