flugfréttir
Asiana eina félagið sem hefur pöntun í A350-800
- Airbus í viðræðum við félagið um að skoða aðra kosti
Fyrsta Airbus A350 þotan fyrir Asiana Airlines
Airbus er nú í viðræðum við Asiana Airlines varðandi pöntun félagsins í Airbus A350-800 þotuna sem er minnsta útgáfan af A350 þotunni.
Airbus hefur enn ekki hafið framleiðslu á A350-800 vélinni en óvissa ríkir um hvort að vélin verði smíðuð
þar sem mjög fá félög pöntuðu þessa undirtegund og hafa þau fá flugfélög, sem pöntuðu hana
á sínum tíma, flest hætt við eða uppfært upp í stærri vélina, Airbus A350-900.
Í dag er kóreska flugfélagið Asiana Airlines eina flugfélagið sem hefur staðfesta pöntunni inni
á borði hjá Airbus í A350-800 þotuna.
Asiana Airlines tók um helgina við sinni fyrstu Airbus A350-900 vél af þeim 12 sem félagið pantaði á sínum
tíma en þá voru einnig pöntuð 8 eintök af A350-800 vélinni og 10 eintök af lengstu þotunni, Airbus A350-1000.
Didier Evrard, yfirmaður yfir Airbus A350 deildinni, segir að flugvélaframleiðandinn sé að ræða við Asiana
Airlines um aðra kosti í stöðunni þar sem A350-800 þotan sé í einskonar „biðstöðu“ eins og er.
Upphaflega voru 14 flugfélög og viðskiptavinir sem pöntuðu A350-800, minnstu útgáfuna af Airbus A350, en þeir 13
viðskiptavinir sem hættu við pöntunina eða breyttu henni voru AerCap, Aeroflot, Afriqiiyah Airways, American Airlines, AWAS, Asiana Airlines, Bangkok Airways,
CIT Group, Hawaiian Airlines, Kingfisher Airlines, Libyan Airlines, Qatar Airways, Tunisair og Yemenia.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.