flugfréttir
Alitalia hefur rekstarfé sem dugar í 2 til 3 vikur til viðbótar
- Neyðarástand eftir að starfsmenn felldu nýjan “björgunarpakka“
Flugfloti Alitalia
Neyðarástand ríkir innan veggja ítalska flugfélagsins Alitalia eftir að meirihluti starfsmanna félagsins greiddi atkvæði gegn viðsnúningsáætlun sem kosið var um en til stóð að koma með nýtt fé inn í félagið frá fjárfestum og bönkum til að bjarga rekstrinum.
Alitalia hefur því núna aðeins rekstrarfé upp á 2 til 3 vikur til viðbótar og ríkir mikil óvissa um framtíð félagsins
sem gæti ráðist á næstu vikum og bendir því margt til þess að endanlegt gjaldþrot blasi við rekstrinum.
Um 11.400 starfsmenn Alitalia kusu um „björgunarpakkann“ sem kemur með niðurskurði og uppsagnir á 980 starfsmönnum og þá gerði ný rekstaráætlun ráð fyrir 8% launalækkun meðal flugmanna og annarra áhafna.
Alitalia var stofnað árið 1946
Um 67% felldu nýju rekstaráætlunina í kjöri sem fram fór meðal starfsmanna og stendur félagið frammi fyrir því
að gangast í gegnum gjaldþrotameðferð þar sem stjórnin mun fá leyfi til þess að frysta greiðslur til kröfuhafa.
Ef gjaldþrotameðferðinni verður hafnað gæti félagið átt þá hættu að það verði tekið til gjaldþrotaskipta og mun hið
70 ára flugfélag þá heyra sögunni til en Alitalia var stofnað árið 1946.
Etihad Airways er stærsti hluthafinn í Alitalia sem á 49% hlut í félaginu en stjórn Etihad Airways hefur lýst
yfir áhyggjum sínum í kjölfar úrslit kosninganna og hefur verið boðað til fundar á morgun vegna málsins.
Nýja rekstaráætlunin hefði tryggt Alitalia aðgang að 2 milljarða evra rekstarfé sem samsvarar 231 milljarði króna
„Við hörmum þessa niðurstöðu og þykir afar leitt að starfsmenn Alitalia kusu gegn samningnum sem þýðir að
allir munu tapa á þessu, starfsmenn, viðskiptavinir og hluthafar“, segir James Hogan, framkvæmdarstjóri Etihad Airways.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.