flugfréttir

JetBlue breytir pöntunum á nokkrum A321neo yfir í A321

27. apríl 2017

|

Frétt skrifuð kl. 08:57

Tölvugerð mynd af Airbus A320neo þotu í litum jetBlue

JetBlue hefur ákveðið að breyta hluta af pöntun sinni í þær Airbus A321neo þotur sem félagið pantaði og skipta þeim út fyrir hefðbundnar Airbus A321 vélar.

JetBlue pantaði á sínum tíma 80 Airbus A321neo vélar og verða þær fyrstu afhentar á næsta ári en félagið ætlar að fresta því að taka við þrettán vélum, sem eiga að afhendast frá árinu 2019 til 2020 og taka þess í stað núverandi útgáfu af Airbus A321 á þessu tímabili.

Þá ætlar félagið breyta einnig pöntun á átta Airbus-þotum sem áttu að afhendast frá 2019 til 2023 og fimm vélum sem til stóð að afhenda frá 2020 til 2024.

Ein ástæðan fyrir þessum breytingum eru þau vandamál sem hafa komið upp með hreyflana frá Pratt & Whitney og hefur JetBlue breytt nokkrum af neo-vélunum yfir í núverandi útgáfu til að viðhalda því að afhendingarnar gangi snuðrulaust fyrir sig á næstu árum.

Yfir 70 hreyflar frá Pratt & Whitney hafa verið fjarlægðir af Airbus A320neo vélunum og færðir til skoðunar frá því vandamálið byrjaði sem varð til þess að Qatar Airways neitaði að taka við fyrstu Airbus A320neo þotunum á sínum tíma.

Airbus hefur afhent yfir 100 Airbus A320neo þotur frá því þær komu á markað árið 2016 en helmingur þeirra koma með hreyfla frá Pratt & Whitney á meðan hinar vélarnar koma með LEAP-1A hreyflum frá CFM International.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga