flugfréttir
Atvinnuflugnemi nauðlenti kennsluvél án nefhjóls í Ástralíu
Þyrla náði nauðlendingunni á myndband sem sýnir hvar flugmaður vélarinnar auks tveggja farþega yfirgáfu vélina um leið og hún var staðnæmd
Flugnemi í atvinnuflugmannsnámi tókst giftusamlega að nauðlenda tveggja hreyfla kennsluflugvél af gerðinni Beechcraft 76 Duchess í Ástralíu í dag.
Vélin fór í loftið frá flugvellinum í Coffs Harbour og var förinni heitið til Archerfield-flugvallarins í Brisbane en vandamál kom upp með nefhjól
vélarinnar sem fór ekki niður fyrir lendingu.
Flugkennari leiðbendi flugnemanum inn til lendingar og hefði nauðlendingin ekki geta tekist betur.
Flugneminn hélt framhluta vélarinnar uppi eins lengi og mögulegt var eftir að vélin var komin niður með aðalhjólin áður en nefhlutinn fór
þó fljótlega ofan í brautina og staðnæmdist vélin skömmu síðar.
Þyrla náði nauðlendingunni á myndband sem sýnir hvar flugmaður vélarinnar auk tveggja farþega
yfirgáfu vélina um leið og hún var staðnæmd en slökkviliðsbílar voru í viðbragðsstöðu.
„Þú gætir ekki óskað þér betri lendingu í þessum aðstæðum þar sem nefhjólið fer ekki niður“, sagði
Robert Loretan, flugkennari, sem var á jörði niðri og var í sambandi við flugnemann á meðan.
„Við höfum farið yfir þessar aðstæður oft og það er alltaf farið yfir öll atriði til að ganga úr skugga um
að allt sé á tæru áður en kemur að því að lenda vélinni ef nægur tími er fyrir hendi og hann gerði
þetta mjög vel“, segir Loretan.
„Ef flugmenn hafa fengið góða þjálfun í flugskólanum þá ætti lendingin að takast jafn vel til og þessi“, bætir
hann við.
Myndband:
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.