flugfréttir
Boeing sakar Bombardier um að selja CSeries undir framleiðsluverði
- Fara með málið fyrir viðskiptaráðuneyti Bandaríkjanna
CS100 þotan frá Bombardier
Boeing sakar Bombardier um að selja CSeries-þoturnar langt undir markaðsvirði og bjóða bandarískum flugfélögum þoturnar á verði sem er lægra en sá kostnaðurinn við að framleiða hverja flugvél í þeim tilgangi að ná undir sig markaðnum í flokki minni farþegaþotna.
Boeing hefur sent formlega beiðni um rannsókn málsins til viðskiptaráðuneytis Bandaríkjanna.
„Bombardier hefur hafið mjög ágjarna söluherferð á CSeries-þotunum í Bandaríkjunum á verði
sem er „fáránlega“ lágt“, segir í yfirlýsingu frá Boeing.
Boeing segir að Bombardier sé að bjóða hvert eintak af vélinni á innan við 2 milljarða króna
á meðan það kostar 3.4 milljarða að framleiða hverja vél og þá er tekið fram að verið sé að selja
vélarnar á lægra verði til Bandaríkjanna samanborið við verðmiðann sem vélin er seld á í Kanada og til annarra landa.
Boeing segir að þetta sé ógn gagnvart flugvélaframleiðandanum bandaríska, birgjum og þeim
fyrirtækjum sem framleiða íhluti í farþegaþotur Boeing.
Boeing segir að styrkir frá ríkisstjórn Kanada hafi rutt leiðina fyrir Bombardier sem er ástæða þess að þeir geta
boðið bandarískum flugfélögum CSeries-þoturnar á verði sem er undir framleiðsluverði og það ógni
söluvelgengni á Boeing 737 MAX 7 þotunni sem er í sama stærðarflokki.
Boeing er ekki eini flugvélaframleiðandinn sem sakar Bombardier um að þiggja óviðeigandi fjarhagsaðstoð
frá ríkisstjórn Kanada en Embraer er einnig ósátt við þessa viðskiptahætti og hefur framleiðandinn farið með málið til Alþjóðaviðskiptastofnunarinnar (WTO).
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.