flugfréttir

TF-NEO lent í Keflavík

- Fyrsta Airbus A320neo þota WOW air

28. apríl 2017

|

Frétt skrifuð kl. 17:40

TF-NEO í snjókomunni á Keflavíkurflugvelli í dag

TF-NEO, fyrst Airbus A320neo þota WOW air, kom til landsins í dag en vélin lenti á Keflavíkurflugvelli á slaginu fjögur nú síðdegis eftir 3:30 klukkustunda afhendingarflug frá Toulouse.

Þetta er fyrsta Airbus A320neo þota í flugsögu Íslands og nýjasta farþegaþotan á landinu en vélin var smíðuð í janúar á þessu ári og er því yngri en 3 mánaða.

Það var ekki beint sumarlegt veður sem tók á móti TF-NEO en þegar hún lenti í Keflavík í snjókomu og hiti við frostmark.

Vélin mun gangast undir innleiðingarferli á næstu dögum og er fyrsta áætlunarflugið með vélinni áætlað næstkomandi miðvikudag, þann 3. maí.

Fyrsti áfangastaðurinn sem TF-NEO mun fljúga til verður Kaupmannahöfn að morgni 3. maí og síðar um daginn mun vélin fljúga til Montréal í Kanada.

„Það er stórkostleg tilfinning og forréttindi fyrir okkur að geta boðið farþegum okkar að fljúga með glænýjum vélum á jafn hagstæðum kjörum og raun ber vitni“, segir Skúli Mogensen, stofnandi WOW air.

TF-NEO verður aðallega notuð á flugi til Stokkhólms, Kaupmannahafnar og til Montréal fyrst um sinn en vélin mun einnig fljúga til annarra áfangastaða síðar meir.

WOW air hefur upp á síðkastið haft tólf Airbus-þotur í flota sínum og er TF-NEO því þrettánda vélin en von er á fjórum þotum til viðbótar í vor og mun flotinn því fara upp í 17 vélar í sumar.













  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga