flugfréttir

Nokkur flugfélög fella niður reglu um tvo í stjórnklefanum

- Reglugerðin ekki talin auka flugöryggi á neinn hátt

29. apríl 2017

|

Frétt skrifuð kl. 13:03

Í stjórnklefa á Boeing 737 þotu

Nokkur flugfélög í Evrópu, sem öll eru dótturfélög Lufthansa, ætla að afnema og fella úr gildi regluna um að ávalt skuli tveir í áhöfn vera í stjórnklefanum á öllum tímum á meðan á flugi stendur.

Flest flugfélög tóku upp þessa reglu í kjölfar þess er aðstoðarflugmaður hjá Germanwings grandaði Airbus A320 þotu félagsins vísvitandi í mars árið 2015 eftir að hann læsti sig inni í stjórnklefanum á meðan flugstjórinn brá sér á salernið.

Vélin fórst í frönsku Ölpunum og létust allir þeir 150 sem voru um borð í vélinni en atvikið varpaði einnig ljósi á þörf fyrir aukið eftirlit með almennri geðheilsu flugmanna þar sem í ljós kom að aðstoðarflugmaðurinn þýski hafði glímt við alvarlegt þunglyndi.

Lufthansa, SWISS International Air Lines og Austrian Airlines munu öll fella niður reglugerðina um tvo í stjórnklefanum frá og með 1. maí sem þýðir að ekki verður lengur þörf á að kalla til flugfreyju eða flugþjón fram í stjórnklefann ef annar flugmannanna bregður sér frá.

Mörg flugfélög segja að reglan með tvo í stjórnklefanum skapi aðra hættu auk þess sem reglan orsakar röskun á starfi áhafnarinnar

Þá mun Germanwings, sem nú hefur sameinast rekstri Eurowings, einnig ákveðið að afnema regluna en það mun þó taka í gildi þann 1. júní.

Flugmálayfirvöld í Evrópu (EASA) endurskoðuðu reglugerðina í fyrra og var flugfélögum tjáð að þau mættu ráða hvort að þau myndi fara eftir reglunni en skoðanir hafa leitt í ljós að reglan með tvo í stjórnklefanum hefur ekki náð að auka flugöryggi.

Fram kemur að hættan á því að flugmaður grandi þeirri flugvél sem hann er að fljúga vísvitandi séu litlar sem engar á sama tíma og að hætta á hryðjuverkum eða flugráni er mun meiri.

SWISS International Air Lines segir að í raun og veru hafi reglan boðið annarri hættu heim en sum flugfélög hafa bent á að hættan felist meðal annars í því að dyr flugstjórnarklefans eru opnar mun lengur á meðan flugliði er að koma sér fyrir á sama tíma og flugmaðurinn er að fara úr klefanum.

Lufthansa, SWISS og Austrian Airlines segja að reglan með tvo í stjórnklefanum verði felld á grundvelli þess að flugfélögin hafi náð að uppfylla öll önnur skilyrði EASA með öðrum hætti á borð við stöðugri starfskjör fyrir flugmenn og auðveldara aðgengi fyrir flugmenn að viðtölum hjá sálfræðingum.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga