flugfréttir

10 mánaða fangelsi fyrir að fljúga einkaþotum án réttinda

29. apríl 2017

|

Frétt skrifuð kl. 14:56

Flugmaðurinn hafði ítrekað flogið einkaþotum eins síns liðs án leyfis

Karlmaður í Bandaríkjunum hefur verið dæmdur í 10 mánaða fangelsisvist fyrir að hafa ítrekað flogið einkaþotum án þess að hafa fullgild réttindi til þess.

Maðurinn, sem heitir Arnold Gerald Leto, flaug seinast einkaþotu af gerðinni Dassault Falcon 10 frá Los Angeles til Las Vegas án þess að hafa hlotið tegundaráritun á þá vél en hann hefur nokkrum sinnum flogið einkaþotum án réttinda frá árinu 2015.

Í janúar árið 2015 flaug hann farþegum á Cessna Citation frá Santa Monica í Kaliforníu til Phoenix án þess að hafa leyfi til að fljúga henni eins síns liðs.

Arnold Gerald Leto var dæmdur í 10 mánaða fangelsi fyrir brotin

Mánuði síðar fékk hann leyfi til að vera aðstoðarflugmaður á þá vél en þrátt fyrir það hélt hann áfram að fljúga einn en hann hafði ekki fengið „single pilot type rating“ réttindi afhent.

Í apríl 2015 flaug hann Cessna Citation einkaþotu frá Burbank í Kaliforníu til Palm Springs og aftur flaug hann einn með farþega frá Santa Monica til Arkansas.

Seinasta flug Letos var þann 8. apríl í fyrra er hann flaug Dassault Falcon 10 þotu frá Van Nuys til Las Vegas með átta farþega innanborðs en þá voru bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) þegar búin að svipta hann skírteininu.

Leto hafði aldrei tegundaráritun á Falcon 10 einkaþotuna sem krefst tveggja flugmanna en FAA segir að um mjög alvarleg brot hafi verið að ræða og sé búið að sjá til þess að Leto muni ekki fljúga meira í bili.

Leto var í vikunni dæmdur í 10 mánaða fangelsi og þá er honum einnig gert að greiða 582.000 krónur í sekt.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga