flugfréttir
Nefhjól féll saman á Boeing 737 eftir lendingu í Angóla
Vélin var nýlent á flugvellinum í Soya í Angóla þegar nefhjólið féll saman
Nefhjól féll saman á farþegaþotu af gerðinni Boeing 737-700 skömmu eftir lendingu á flugvellinum í Soya í Angóla í dag.
Vélin, sem er frá TAAG Angola Airlines, var að koma frá höfðuborginnni Lúanda
þegar atvikið átti sér stað en ekki er vitað til þess að nein meiðsl hafi orðið á fólki.
Vélin var að yfirgefa brautina eftir lendingu þegar nefhjólið féll saman á brautinni.
Orðrómur var á kreiki meðal farþega í flugstöðinni eftir atvikið að aðstoðarflugmaður
vélarinnar hafi óvart framkvæmt ranga aðgerð og tekið hjólin upp í stað
þess að draga inn flapsa eftir lendinguna.
Þá kemur fram að talsmaður TAAG Angola Airlines hafi einnig lýst því yfir að flugmaðurinn
hafi óvart tekið upp handfangið fyrir hjólin er hann var að fara yfir tékklista eftir lendingu og
sé greinilegt að skynjari, sem á að koma í veg fyrir slíkt, hafi ekki virkað.
Myndir:
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.