flugfréttir
WestJet pantar tíu Boeing 787-9 Dreamliner-þotur
Tölvugerð mynd af Boeing 787-9 í litum WestJet
Kanadíska flugfélagið WestJet hefur gert samning við Boeing um kaup á tíu Dreamliner-þotum af gerðinni Boeing 787-9 með kauprétti á tíu vélum til viðbótar.
Vélarnar verða afhentar frá byrjun árs 2019 til ársins 2021 og ef WestJet nýtir sér kaupréttinn
á tíu vélum til viðbótar þá verða þær afhentar frá árinu 2020 til ársins 2024.
WestJet ákvað þá einnig að nýta sér þann kauprétt sem félagið hafði tryggt sér á 15 Boeing 737 MAX
vélum og á félagið því von á 65 vélum af gerðinni Boeing 737 MAX 7, MAX 8 og MAX 9.
Boeing 787-9 vélarnar verða afhentar til WestJet með GEnx-1B hreyflum en með þeim mun félagið
geta flogið til áfangastaða í Asíu, Suður-Ameríku og til Evrópu.
WestJet hefur eingöngu Boeing-vélar í flota sínum sem eru af gerðinni Boeing 737 (737-600, 700 og -800) og
Boeing 767-300ER en floti félagsins telur í dag 119 þotur.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.