flugfréttir

Boeing 767 flughermir mun bætast við á Flugvellina

- Boeing 757 hermirinn fullnýttur - Verða með þrjá flugherma haustið 2018

2. maí 2017

|

Frétt skrifuð kl. 14:35

Boeing 757 flughermirinn á Flugvöllum sem tekinn var í notkun fyrir 2 árum síðan

Nýr flughermir mun bætast við í flugþjálfunarmiðstöð Icelandair á Flugvöllunum í Hafnafirði næsta haust en TRU Flight Training Iceland hefur gert samning um kaup á flughermi fyrir Boeing 767-300 vélarnar.

TRU Flight Training Iceland á og rekur einn Boeing 757 flughermir á Flugvöllunum sem er fullkomnasti flughermir landsins en hann var tekin í notkun árið 2015 og er hann nákvæm eftirlíking af stjórnklefa Boeing 757 flugvélar eins og Icelandair notar í sínum flugrekstri.

Í febrúar á þessu ári var gerður samningur við TRU Simulation + Training í Kanada um kaup á fyrsta Boeing 737 MAX flugherminum sem er áætlað að verði tekinn í notkun sumarið 2018.

Boeing 757 hermirinn annar ekki eftirspurninni

Eins og staðan er í dag er nýtingin á Boeing 757 flugherminum orðin það mikil að Icelandair nær ekki að þjálfa alla flugmennina í herminum í Hafnafirði.

Boeing 757 flughermirinn í Hafnafirði

„Það er líka það mikil eftirspurn frá erlendum flugfélögum í að þjálfa flugmenn á Boeing 757 og 767 og það er alveg fullvíst að nýtingin á 767 herminum verður mjög mikil“, segir Guðmundur Örn Gunnarsson, framkvæmdarstjóri TRU Flight Training Iceland.

Er stundum nýttur 24 tíma á sólarhring

“Hann er í gangi í 20 tíma á sólarhring og við þurfum alltaf smá tíma í undirbúning og viðhaldstíma sem tekur oftast um 4 tíma þannig að yfir 20 tímar á dag í nýtingu er ekki hægt. En við sjáum stundum 24 tíma nýtingu á dag“, segir Guðmundur sem bendir á að árið 2017 verður metár er kemur að nýtingu á Boeing 757 herminum.

Þrátt fyrir að Boeing 757 og Boeing 767 deili sömu tegundaráritun þá þurfa flugmenn samt að gangast undir þjálfun í Boeing 767 hermi. - „Þeir geta ekki bara fengið þjálfun í 757 hermi og flogið 767 þannig að tegundaráritunin er þannig að þú þarft að fara annað hvert skipti á Boeing 767“, segir Guðmundur.

Framkvæmdir standa nú yfir við stækkun á byggingunni á Flugvöllunum og mun ný viðbygging hýsa bæði 737 MAX herminn og 767 herminn og verða því þrír flughermar komnir í fulla notkun haustið 2018.

Boeing 757 flughermirinn á Flugvöllunum var keyptir frá TRU Simulation + Training







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga