flugfréttir

Fyrsta áætlunarflugið með Boeing 737 MAX þann 19. maí

- Malindo Air flýgur vélinni fyrst allra félaga

3. maí 2017

|

Frétt skrifuð kl. 18:36

Boeing 737-800 þota Malindo Air í flugprófunum í Renton

Eftir rúmar tvær vikur mun hin nýja Boeing 737 MAX þota fljúga fyrsta áætlunarflugið með farþega en það er malasíska flugfélagið Malindo Air sem verður fyrst allra flugfélaga til að taka Boeing 737 MAX í notkun.

Fyrsta Boeing 737 MAX 8 þota Malindo Air mun leggja af stað í afhendingarflugið frá Boeing Field í Bandaríkjunum þann 15. maí og er áætlað að vélin lendi í Kuala Lumpur tveimur dögum síðar eða þann 17. maí.

Móttökuathöfn mun fara fram þann 18. maí og daginn eftir, 19. maí, mun vélin fara í sitt fyrsta áætlunarflug frá Kuala Lumpur til Singapore sem verður fyrsta áætunarflugið í heiminum með Boeing 737 MAX.

Sex ár eru síðan að Malindo Air lagði inn pöntun í 201 eintak af Boeing 737 MAX árið 2011 en á þeim tíma var um að ræða stærstu einstöku pöntun á einu bretti í sögu Boeing.

Upphaflega stóð til að Southwest Airlines yrði fyrsta flugfélagið til að hefja áætlunarflug með Boeing 737 MAX en þrátt fyrir að félagið hefur tekið við fyrstu vélunum þá mun það ekki hefja áætlunarflug með þeim fyrr en í október.

Þá mun Norwegian einnig fá sína fyrstu Boeing 737 MAX vél afhenta í þessum mánuði.







  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga