flugfréttir
Boeing 757 þota Icelandair komin í liti Vatnajökuls
- Lenti á Keflavíkurflugvelli í dag eftir málningarvinnu á Englandi
Vatnajökulsvélin á flugvellinum í Norwich í dag
Ein ef Boeing 757 þotum Icelandair hefur verið máluð í sérstöku Vatnajökuls-litaþema og lenti vélin nú á sjöunda tímanum á Keflavíkurflugvelli eftir að hafa gengist undir málningarvinnu í Bretlandi.
TF-FIR, sem nú heitir „Vatnajökull“ hét áður „Askja“ en vélin var máluð hjá Air Livery í Norwich
og er þetta önnur vélin hjá Icelandair í sérstöku litabúningin en „Hekla Aurora“
hefur fengið gríðarlega athygli eftir að hún var máluð í litum norðurljósanna árið 2015.
Vatnajökulsvélin kemur með sérstökum merkingum í tilefni af stórafmæli Icelandair sem
fagnar 80 ára flugsögu sinni á þessu ári en félagið var stofnað árið 1937.
Myndir af vélinni fara nú sem eldur um sinu á samfélagsmiðlum og mun vélin án efa fanga athygli allra þeirra sem eiga eftir að berja hana augum á flugvöllum víðvegar á næstunni.
Hægt er að smella á myndian til að sjá stærri útgáfu
Ljósmynd (fyrir neðan): Birgir Örn Sigurjónsson
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.