flugfréttir
Icelandair í aukið samstarf með JetBlue
Undanfarin fimm ár hafa JetBlue og Icelandair átt samstarf um gagnkvæma farseðlaútgáfu á flugleiðum og með samkenndum (codeshare) flugum
Icelandair og bandaríska flugfélagið JetBlue tilkynntu í dag að félögin hafa samið sín á milli um samstarf í punktasöfnun.
Það felur meðal annars í sér að félagar í Icelandair Saga Club geta nú safnað Vildarpunktum og Kortastigum á öllum flugleiðum JetBlue og á sama hátt geta félagar í TrueBlue fríðindaklúbbi JetBlue safnað punktum á öllum flugleiðum Icelandair.
Icelandair fagnar samstarfinu með JetBlue með tvöföldum Vildarpunktum ef félagar fljúga fyrir 7. júlí.
„Í dag eru fimm ár síðan Icelandair og JetBlue tóku fyrstu skrefin í samstarfi sem síðan hefur styrkst ár frá ári“, segir Jamie Perry, framkvæmdastjóri markaðsmála JetBlue. „Samkomulagið sem við kynnum nú er spennandi viðbót fyrir viðskiptavini beggja flugfélaga“.
JetBlue er lággjaldaflugfélag sem hefur skapað sér sérstöðu með óvenjulegri og góðri þjónustu, einkum þekkt fyrir að bjóða upp á beinar sjónvarpsútsendingar í vélum sínum, leðursæti og mikið sætabil. Það flýgur um 35 milljónum farþega árlega til um 100 borga, að meðaltali 925 flug á dag.
„Samkomulagið við JetBlue gefur farþegum beggja flugfélaga tækifæri til þess að safna fleiri punktum en áður. Við fögnum því að geta boðið farþegum Icelandair nýja möguleika um leið og við bjóðum fjölmarga viðskiptavini JetBlue velkomna til okkar“, segir Guðmundur Óskarsson, framkvæmdastjóri sölu- og markaðssviðs Icelandair.
Undanfarin fimm ár hafa JetBlue og Icelandair átt samstarf um gagnkvæma farseðlaútgáfu á flugleiðum og með samkenndum (codeshare) flugum.
Icelandair, sem fagnar 80 ára afmæli á þessu ári, flýgur til 18 áfangastaða í Norður-Ameríku.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.