flugfréttir

Myndband: C919 flaug í dag jómfrúarflugið

5. maí 2017

|

Frétt skrifuð kl. 18:11

COMAC C919 í flugtaki í dag á Pudong-flugvellinum í Shanghai

Kínversku farþegaþotunni C919 var flogið í dag í fyrsta sinn en jómfrúarflugið átti sér stað klukkan 7:19 í morgun að íslenskum tíma.

Sjónvarpsstöðvar í Kína sýndu jómfrúarflugið í beinni og var myndavél meðal annars komið fyrir í stjórnklefanum fyrir aftan flugstjórann og þá var annarri myndavél komið fyrir á nefhjóli en hjól vélarinnar voru niðri allan tímann.

Tilraunaflugið gekk að óskum og fengu fjölmiðlar að skoða vélina eftir að hún lenti aftur á Pudong-flugvellinum þar sem athöfn fór fram að viðstöddum Ma Kai, forseta Kína, og öðrum embættismönnum.

Myndavélum var m.a. komið fyrir í stjórnklefanum og var sjónarhornið sýnt í beinni í sjónvarpi

Það er kínverski flugvélaframleiðandinn COMAC sem framleiðir C919 þotuna en vélin er ein tæknivæddasta flugvél sem Kínverjar hafa smíðað.

Næst taka við ítarlegar flugprófanir og verða tilraunavélarnar sex talsins en þær munu fljúga til samans 4.200 klukkustundir á meðan á flugprófunum stendur yfir.

Það er China Eastern Airlines sem mun fá fyrsta eintakið afhent árið 2020 en COMAC hefur fengið pantanir í 570 eintök af vélinni.

Flest flugfélögin sem hafa pantað C919 þotuna eru kínversk en þess má geta að Boeing spáir því að flugfélög í Kína þurfi á 6.800 nýjum farþegaþotum á að halda á næstu sjö árum til að uppfylla eftirspurnina sem framundan er í fluginu þar í landi.



Jómfrúarflugið - Flugtakið og lendingin í neðra myndbandinu:









  fréttir af handahófi

  Nýjustu flugfréttirnar

Icelandair staðfestir pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur

6. júlí 2023

|

Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.

Hefja rannsókn á endurfjármögnun SAS í kóvidinu

5. júlí 2023

|

Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha

Tólf slösuðust um borð eftir mikla ókyrrð

4. júlí 2023

|

Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.

Air Atlanta Europe leigir tvær 777-300ER til Saudia

4. júlí 2023

|

Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.

Þota frá Delta lenti með nefhjólið uppi í Charlotte

28. júní 2023

|

Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.

Airbus gerir samning um þróun á eldsneyti úr etanóli

28. júní 2023

|

Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.

Skortur á flugumferðarstjórum vestanhafs veldur áhyggjum

28. júní 2023

|

Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka

Pólsk farþegaþota flaug óvart inn í úkraínska lofthelgi

26. júní 2023

|

Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.

Vinna að því að stytta biðtíma fyrir vottanir og skráningar

23. júní 2023

|

Bandarísk flugmálayfirvöld (FAA) ætla sér að stytta biðtíma eftir skráningum flugvéla og útgáfu vottanna með því að einfalda ferlið og ná með því niður þeirri bið sem viðgengist hefur.

Fækka fraktþotum enn frekar vegna dvínandi eftirspurnar

23. júní 2023

|

Vöruflutningarisinn FexEx ætlar að kyrrsetja enn fleiri fraktflugvélar sökum tapreksturs auk þess sem rekstrartekjur fyrirtækisins hafa dregist töluvert saman auk þess sem að eftirspurn eftir fraktf

 síðustu atvik

  2023-01-17 12:00:00

  • 1 JAN

    United

      - Hjólabúnaður

  • 1 JÚL

    Tajik Air

      - Þrýstingsjöfnun

  • 1 JAN

    SWISS

      - Veðurratsjá

  vinsælast síðustu 7 daga