flugfréttir
Norwegian íhugar langflug milli Þýskalands og Ameríku
Norwegian flýgur í dag yfir 450 flugleiðir milli 140 áfangastaða
Norwegian íhugar nú að hefja langflug yfir Atlantshafið frá Þýskaland líkt og félagið gerir nú með flugi til Ameríku frá Skandinavíu og Bretlandi.
Félagið hefur ekki talið upp hvaðan frá Þýskalandi félagið sér fram á að fljúga frá og
er einungis verið að vega og meta hvort að grundvöllur sé fyrir flugi frá þýskum borgum
til Bandaríkjanna.
Norwegian sér fram á að mögulega væri hægt að nota Airbus A321LR þoturnar í flug
frá þýskum borgum til Bandaríkjanna en félagið á von á 30 eintökum af þeirri vél
og verða þær fyrstu afhentar árið 2019.
Airbus A321LR mun hafa flugþol upp á 7.400 kílómetra sem dugar til að fljúga frá
Munchen til Chicago eða frá Berlín til Washington.
Umsvif Norwegian hafa aukist umtalsvert á seinustu misserum og flýgur félagið í dag
yfir 450 mismunandi flugleiðir milli 140 áfangastaða.
6. júlí 2023
|
Icelandair hefur staðfest pöntun í allt að 25 Airbus A321XLR þotur en um er að ræða staðfestingu á samkomulagi er flugfélagið gerði í apríl í vor við Airbus.
5. júlí 2023
|
Framkvæmdarstjórn Evrópusambandsins ætlar að hefja rannsókn á þeirri endurfjármögnun sem sænska og danska ríkið gerði á rekstri SAS í heimsfaraldrinum og skoða hvort að öllum reglugerðum og lögum ha
4. júlí 2023
|
Að minnsta kosti 12 manns slösuðust í mikilli ókyrrð um borð í breiðþotu frá Hawaiian Airlines sl. föstudag er þotan var á leið frá Hawaii til Ástralíu.
4. júlí 2023
|
Air Atlanta Europe tók nýlega í notkun tvær Boeing 777-300ER breiðþotur sem fyrirtækið hefur áframleigt til Saudia.
28. júní 2023
|
Farþegaþota frá Delta Air Lines lenti án nefhjóls á Charlotte/Douglas í Norður-Karólínu í dag.
28. júní 2023
|
Airbus hefur hafið samstarf við fyrirtækið LanzaJet um að hraða þróun og vottun á sjálfbæru eldsneyti sem vonast er til þess að geti leyst af hólmi þörf fyrir hefðbundið þotueldsneyti á næstu árum.
28. júní 2023
|
Eftirlitsmaður samgönguráðuneytis Bandaríkjanna hefur gefið út skýrslu þar sem fram kemur að skortur á flugumferðarstjórum á vegum bandarískra flugmálayfirvalda (FAA) sé áhyggjuefni sem þarf að taka
26. júní 2023
|
Pólsk farþegaþota frá flugfélaginu Enter Air fór óvart inn í úkraínska lofthelgi um helgina þegar flugmenn vélarinnar voru að sneiða hjá þrumuveðri.